Skilmálar
-
Allur höfundaréttur að ljósmyndun er í eigu Unnar Önnu Árnardóttur, Unnur Anna Photography.
1.2 Um höfundarétt gilda höfundarréttarlög nr 73/1972.
1.3 Afhending ljósmynda til viðskiptavina felur lögum samkvæmt ekki í sér framsal á höfundarrétti né veitir hún heimild til breytinga á ljósmyndum.
-
15-20 bestu myndir úr myndatöku eru settar í læst albúm á vefsíðunni www.unnuranna.com. Viðskiptavinur fær senda slóð á albúmið ásamt lykilorði og hefur þá 3 -5 daga til að skoða og velja myndir. Ef viðskiptavinur hefur ekki valið myndir eftir þann tíma, velur ljósmyndari, Unnur Anna myndir.
2.2 Myndir afhentar fyrir prent eru 30 cm á lengri kantinn og 300dpi sem dugar til prentunar á flestum stærðum mynda. Ef óskað er eftir prentum á mjög stórum myndum vinsamlegast hafið samband og viðskiptavinur fær myndina í enn betri gæðum sér að kostnaðarlausu.
2.3 Myndir fyrir vefinn eru 2048px á lengri kantinn og 72dpi. Velkomið er að birta myndir fyrir vef á samfélagsmiðlum eins og Facebook og Instagram.
2.4 Óheimilt er að skera (crop-a) eða breyta myndum (t.d. fyrir Instagram).
2.5 Óheimilt er að fjarlægja logo af ljósmyndum, t.d. á Instagram eða Facebook.
-
Myndirnar eru til einkanota og ekki er leyfilegt að nota þær í auglýsingaskyni nema samið sé sérstaklega um slíkt.
3.1 Unnur Anna áskilur sér rétt til að birta ljósmyndir á samfélagsmiðlum og á vefsíðu sinni, nema samið sé um annað sérstaklega.
-
Myndirnar eru afhentar í gegnum vefsíðuna WeTransfer. Viðskiptavinir hafa 8 daga til að downloada myndunum. Ef myndirnar glatast hjá viðskiptavini er hægt að fá þær sendar aftur innan tveggja ára.
4.1 Myndirnar eru geymdar hjá Unni Önnu í 2 ár. Eftir það er þeim eytt og varðveisla þeirra alfarið á ábyrgð viðskiptavina.
-
Greiðsla fyrir myndatökuna er skv. verðskrá sem sjá má á heimasíðunni www.unnuranna.com. Greiðsla skal fara fram áður en myndirnar eru afhentar viðskiptavini.
-
Viðskiptavinur samþykkir skilmála þessa við pöntun myndatökunnar á heimasíðunni www.unnuranna.com og/eða með undirritun sinni við upphaf myndatökunnar. Brot á höfundarrétti og skilmálum þessum varða við höfundarréttarlög og áskilur Unnur Anna Árnadóttir sér allan rétt vegna slíkra brota.