top of page
  • Unnur Anna

Mömmukakó

Veturinn hefur svo sannarlega verið að gera vart við sig í þessari viku, allavegana hér á Akureyri. Það hefur þó verið mjög fallegt veður, en samt mjög kalt, -18°C. Því finnst mér við hæfi að koma með uppskrift af heimins besta kakói, það er svo gott í þessum kulda. Það heitir því einfalda nafni, mömmukakó.

Amma gerði það oft fyrir mömmu – og nú gerir mamma það oft fyrir okkur. Mamma gerir kakóið ósjaldan á svona köldum vetrardögum og ég veit ekkert betra en að drekka það og dýfa kringlum í. Mömmukakó er mjög sætt kakó – og það er eiginlega það besta við kakóið. Mamma hefur oft reynt að minnka sykurinn í því, en við tökum alltaf eftir því þegar hún gerir það, því þá er kakóið ekki jafn gott.

Mömmukakó – innihald:

1 ½ lítri mjólk

300 g sykur

2 msk kakóduft

½ tsk salt

3-4 msk rjómi

1 tsk vanilludropar

Mömmukakó – aðferð:

  1. Setjið mjólkina í stóran pott og látið sjóða.

  2. Á meðan mjólkin er að hitna, setjið sykur, kakóduft og salt í skál og blandið saman með skeið.

  3. Þegar mjólkin er farin að sjóða, lækkið hitann.

  4. Setjið tvær ausur af mjólk út í sykurblönduna og blandið vel saman þannig að allt leysist upp.

  5. Hellið svo blöndunni út í mjólkina og hrærið.

  6. Bætið rjómanum og vanilludropunum út í blönduna.

Kakóið er mjög gott með þeyttum rjóma, sykurpúðum og kringlum til að dýfa í!

- Unnur Anna -

bottom of page