Dásamleg Jarðarberjaterta
Þessi jarðaberjasæla er svona klassísk gamaldags jarðarberjaterta sem ég fann í gömlu uppskriftarbókinni hennar mömmu. Það sem ég elska gömlu uppskriftarbókina hennar. Hún er stútfull af handskrifuðum uppskriftum sem mamma hefur fengið héðan og þaðan í gegnum tíðina. Hún ber þess merki að hafa verið mikið notuð í gegnum árin og það gefur henni svo mikinn sjarma. Mér finnst svo gaman að gramsa aðeins í henni og finna gamlar góðar uppskriftir :).
Hér er uppskriftin af þessari frábæru einföldu jarðarberjatertu.
Innihald:
6 eggjahvítur
300 g sykur
1/8 tsk salt
2 tsk borðedik
ca ½ líter rjómi
1-2 Box jarðarber
Aðferð:
Stillið ofninn á 150 °C
Þeytið eggjahvíturnar saman í smá stund
Bætið sykrinum útí hægt og rólega
Bætið salti og ediki saman við.
Setjið í eldfast mót, ég nota 28 cm sporöskjulaga form
ATH! Marengsinn fyllir mjög líklega nánast upp í allt formið, en mun falla alveg slatta þegar hann er tekinn úr ofninum.
Bakið við 150°C í 30 mínútur og svo við 175°C í 30 mínútur
Leyfið aðeins að kólna.
Því næst er rjóminn þeyttur og svo settur ofan á marengsinn.
Jarðarberin eru skorin og þeim raðað fallega ofaná eða sett heil ofan á. Ég skar þessi jarðarber með eggjaskera,þannig urðu allar sneiðarnar jafn þykkar og þetta tók enga stund!